Elías Már Ómarsson, framherji Víkings, er með slitið krossband, líkt og óttast hafði verið.
Sölvi Geir Ottesen þjálfari liðsins staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Elías festist í grasinu og meiddist illa gegn Gyor í Meistaradeildinni í vikunni.
Eftir leikinn, sem vannst 1-0, gagnrýndi Sölvi Reykjavíkurborg fyrir að bjóða félaginu upp á slakt gervigras, en tveir leikmenn kvennaliðs Víkings hafa slitið krossband þar einnig.
Elías hefur verið hvað besti leikmaður Víkings frá komu sinni í vetur. Er hann með tólf mörk í Bestu deildinni það sem af er móti. Nú er ljóst að hann verður ekki meira með.