433

Tekinn við portúgalska landsliðinu

Mynd
Jorge Jesus

Portúgalska knattspyrnusambandið hefur staðfest ráðninguna á reynsluboltanum Jorge Jesus sem nýs landsliðsþjálfara.

Jesus tekur við starfinu af Roberto Martinez, sem hafði fyrir HM greint frá því að mótið yrði hans síðasta með portúgalska liðið. Portúgal féll úr leik í 16-liða úrslitum mótsins eftir 1-0 tap gegn Spáni.

Hinn 71 árs gamli Jesus stýrði síðast Al-Nassr, þar sem hann þjálfaði meðal annars Cristiano Ronaldo.

Jesus á að baki langan og farsælan þjálfaraferil og hefur meðal annars stýrt Benfica, Sporting, Braga og Fenerbahce.