433

Staðfestur hjá enska liðinu

Mynd
Getty Images

Burnley hefur ráðið Belgann Nicky Hayen sem nýjan knattspyrnustjóra. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Hayen, sem kemur frá Genk, tekur við af Scott Parker, sem lét af störfum eftir að Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni.

„Ég er ánægður með að ganga til liðs við félag með mikla sögu og stuðningsmenn sem bera hag þess fyrir brjósti. Ég veit að flestir þekkja mig lítið enn sem komið er, en það er mitt að breyta því,“ sagði Hayen við undirritunina.

Burnley reyndi áður að fá Craig Bellamy, landsliðsþjálfara Wales, og einnig var leitað til Rob Edwards, en hvorugur vildi taka við starfinu.

Hayen hefur áður stýrt Club Brugge til belgíska meistaratitilsins og fór með liðið í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar áður en hann tók við Genk.