Verkalýðsleiðtoginn Sólveig Anna Jónsdóttir hefur svipt hulunni af því hvernig hún velur lönd til að halda með í knattspyrnu.
Sólveig Anna var gestur í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun þar sem talið barst að HM í knattspyrnu.
Hún er nýkomin til Íslands úr fríi í útlöndum þar sem hún sá nokkra leiki. „Ég reyni að fylgjast með íþróttum út frá pólitísku sjónarhorni þannig að ég held með þeim sem mér finnst mest skilið,“ segir hún. „Ég hélt með Egyptum því að þeir studdu Gaza.“
Sló hún á létta strengi. „Og alls ekki halda með neinum sem er í ESB. Djók.“
„Mér var kennt það þegar ég var lítil að ef maður gat ekki haldið með Sovétríkjunum þá valdi maður alltaf brúnasta eða svartasta fólkið til að halda með. Sovétríkin eru ekki lengur til, þá held ég alltaf með fólki sem tilheyrir minnihlutahópum á Vesturlöndum.“