Skoska stórliðið Celtic hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Camilo Duran frá aserska félaginu Qarabag.
Kólumbíumaðurinn, sem er 24 ára gamall, skrifaði undir fimm ára samning, en hann sló í gegn á sínu fyrsta tímabili með Qarabag, einna helst í Meistaradeild Evrópu, þar sem liðið fór alla leið í útsláttarkeppnina.
Duran vonast að sögn til þess að félagaskiptin auki möguleika hans á að komast í landslið Kólumbíu.
Qarabag er sem stendur í miðju einvígi við Lengjudeildarlið Vestra í Evrópudeildinni. Aserarnir unnu fyrri leikinn í gær 3-0 heima fyrir og liðin mætast að nýju á Íslandi á fimmtudag. Duran var ekki með í gær.