Sadio Mane hefur lagt landsliðsskóna á hilluna eftir 14 ára feril með landsliði Senegal.
Mane greinir frá ákvörðun sinni í yfirlýsingu nokkrum dögum eftir að Senegal féll úr leik í 16-liða úrslitum HM með 3-2 tapi gegn Belgíu.
Þessi 34 ára gamli fyrirliði kveður landsliðið eftir 130 landsleiki og skilur eftir sig stórt skarð. Hann leiddi Senegal meðal annars til sigurs á Afríkumótinu árið 2021 og er talinn einn besti knattspyrnumaður í sögu landsins.
„Vitið bara að ég fórnaði öllu fyrir þennan fána. Ég gaf alltaf allt sem ég átti og barðist af fullum krafti fyrir föðurlandið okkar,“ segir Mane í yfirlýsingunni.
Mane vakti fyrst athygli í Frakklandi með Metz áður en hann sló í gegn með Liverpool.