433

Jafnt á Hlíðarenda - Afar þéttur pakki á botninum

Mynd
Mynd: Valur

Valur og Stjarnan skildu jöfn í lokaleik umferðarinnar í Bestu deild kvenna í kvöld.

Stjörnukonur voru sigurstranglegri fyrir leik og komust þær yfir strax á 3. mínútu með marki Þóru Maríu Hjaltadóttur.

Staðan var 0-1 í hálfleik og allt þar til um miðjan seinni hálfleikinn þegar Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði fyrir heimakonur.

Lokatölur 1-1. Stjarnan er áfram í þriðja sæti, nú með 18 stig, 5 stigum frá toppliði FH eftir jafnmarga leiki.

Valur er í sjöunda sæti, stigi fyrir ofan fallsvæðið. Fallpakkinn er í raun orðinn ansi stór og þéttur frá fimmta sæti og niður.