433

Enn ein styrkingin á miðjuna á Old Trafford?

Mynd
Getty Images

Manchester United er ekki hætt að reyna að styrkja miðjuna hjá sér þrátt fyrir að vera að tryggja sér tvo öfluga menn í stöðuna.

Andrey Santos er á leið til félagsins frá Chelsea og Ederson frá Atalanta, en samkvæmt Teamtalk skoðar United það að bæta einnig við sig Manu Kone frá Roma.

Hinn 25 ára gamli Kone hefur heillað mikið á Ítalíu og er einnig hluti af landliðshópi Frakka. Hann hefur verið orðaður við Arsenal einnig.

Kone er lykilhlekkur í liði Roma en félagið er þó til í að skoða sölu ef tilboð berst upp á meira en 40 milljónir punda.