433

Barátta fjölskyldunnar skilað sér - Hefja rannsókn á andláti heimsmeistarans

Mynd
Nobby Stiles.

Dánardómstóll í Manchester hefur úrskurðað að fram fari formleg rannsókn á andláti enska heimsmeistarans Nobby Stiles eftir að í ljós kom að hann glímdi við langvinna áverkatengda heilahrörnun (CTE) þegar hann lést árið 2020, 78 ára að aldri.

Stiles, sem varð heimsmeistari með Englandi árið 1966 og lék tæplega 400 leiki fyrir Manchester United, greindist samkvæmt sérfræðiskýrslu einnig með Alzheimer-sjúkdóm. Taugalæknirinn Daniel du Plessis taldi hins vegar að CTE, sem tengist endurteknum höfuðhöggum, hefði einnig átt þátt í andlátinu ásamt öðrum hrörnunarsjúkdómum í heila.

Dómarinn Chris Morris sagði að þar sem áverkar væru taldir þáttur í dánarorsök væri nauðsynlegt að hefja formlega rannsókn á málinu.

Fjölskylda Stiles hefur um árabil barist fyrir því að knattspyrnuyfirvöld geri meira til að styðja fyrrverandi leikmenn sem glíma við heilabilun og aðra taugahrörnunarsjúkdóma. Sonur hans, John Stiles, hefur meðal annars sagt að knattspyrnan hafi „drepið“ föður sinn og leiðir hagsmunasamtök sem krefjast aukinnar ábyrgðar af knattspyrnuyfirvöldum.

Fjölskylda Stiles er meðal þeirra sem höfðað hafa mál gegn knattspyrnusamböndum Englands og Wales, sem og ensku fótboltadeildunum. Þau halda því fram að yfirvöld hafi vanrækt skyldur sínar þrátt fyrir að hafa átt að vita af hættunni sem fylgdi endurteknum skallaæfingum og höfuðhöggum.

Málið kemur í kjölfar sambærilegrar rannsóknar á andláti Gordon McQueen fyrr á þessu ári, þar sem niðurstaðan var sú að endurteknir skallar hefðu líklega átt þátt í heilaskaða sem leiddi til dauða hans. McQueen greindist einnig með CTE.

Rannsókn sem enska knattspyrnusambandið og leikmannasamtökin styrktu árið 2019 sýndi að atvinnuknattspyrnumenn eru um þrisvar og hálfu sinni líklegri til að látast af völdum taugahrörnunarsjúkdóma en aðrir jafnaldrar. Í kjölfarið hefur enska knattspyrnusambandið hafið innleiðingu reglna sem banna skalla í yngstu aldursflokkum, en þær eiga að taka að fullu gildi fyrir leikmenn 11 ára og yngri árið 2026.