433

Var orðaður við Arsenal en fer til Spánar á sex milljarða

Mynd
Getty Images

Atletico Madrid er við það að ganga frá kaupum á danska miðjumanninum Morten Hjulmand frá Sporting.

Samkvæmt Fabrizio Romano hafa félögin náð samkomulagi um kaupverð upp á 40 milljónir evra auk árangurstengdra greiðslna. 

Hjulmand mun skrifa undir samning til ársins 2031 og á aðeins eftir að ferðast til Madrídar í til að ganga frá formsatriðum.

Arsenal var meðal þeirra félaga sem sýndu Hjulmand áhuga fyrr í sumar, en ekkert varð úr þeim áhuga og félagið er nú á fullu að reyna að fá miðjumanninn Bruno Guimaraes frá Newcastle.