Frakkland vann verðskuldaðan sigur á Marokkó í 8-liða úrslitum HM í kvöld.
Þetta var þolinmæðisverk fyrir Frakka og klikkaði Kylian Mbappe til að mynda á vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Hann bætti þó upp fyrir það eftir um klukkutíma leik og skömmu síðar innsiglaði Ousmane Dembele 2-0 sigur.
Frakkar hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa. Liðið mætir Spáni eða Belgíu í undanúrslitunum.