433

Þolinmæði Evrópumeistaranna á þrotum

Mynd
Kolo Muani í úrslitaleik HM 2022. Getty Imags

Randal Kolo Muani er snúinn aftur til Paris Saint-Germain en allt bendir til þess að hann verði seldur áður en nýtt tímabil hefst.

Frakkinn á erfitt tímabil á láni hjá Tottenham og komst ekki í hóp Frakka fyrir heimsmeistaramótið. Kolo Muani vill nú fara aftur til Juventus, þar sem hann sló í gegn á láni á þarsíðustu leiktíð. 

Viðræður PSG við ítalska félagið ganga þó brösuglega þar sem fjárhagsstaða þess er ekki sem sterkust. Evrópumeistararnir hafa því opnað á tilboð frá öðrum félögum.

Talið er að áhugi sé á Kolo Muani frá bæði ensku og þýsku úrvalsdeildinni.