433

Þetta hafa veðbankar að segja um möguleika Stjörnunnar gegn Færeyingunum

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Stjarnan mætir færeyska liðinu Víkingi frá Götu í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Garðbæingar þykja sigurstranglegri.

Leikurinn hefst klukkan 19 og er spilað á Samsungvellinum í Garðabæ. Það er mikilvægt fyrir Stjörnuna að taka gott veganesti með sér í seinni leikinn í Færeyjum eftir viku.

Veðbankar hafa trú á liðinu, en stuðull á sigur Stjörnunnar í kvöld er 1,61. Hann er 3,66 á Víking og 4,05 á jafntefli. 

Gengi Stjörnunnar í Bestu deildinni hefur verið undir væntingum á leiktíðinni og réðist félagið nýlega í þjálfarabreytingar, þar sem Jón Þór Hauksson tók við af Jökli Elíasabetarsyni.