433

Skrifar undir hjá Arsenal - „Stærsta félag Englands“

Mynd
Getty Images

Arsenal hefur gengið frá kaupum á markverðinum Illan Meslier, sem kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Leeds.

Meslier, sem er 26 ára, hefur skrifað undir tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár. Verður hann þriðji markvörður Arsenal eins og staðan er.

„Ég er gríðarlega ánægður. Þetta er stór dagur fyrir mig því ég er kominn til Englandsmeistaranna. Arsenal er stærsta félag Englands og ég hlakka til að vinna titla með þessu liði,“ sagði Meslier við undirskrift.

Frakkinn lék 215 leiki fyrir Leeds á sjö árum hjá félaginu en missti stöðu sína sem aðalmarkvörður undir lok tímabilsins 2024-2025. Á síðasta tímabili lék hann ekki einn einasta leik fyrir aðalliðið.

Koma Meslier þýðir jafnframt að ungi markvörðurinn Tommy Setford verður lánaður frá Arsenal á komandi tímabili. Sem stendur er gert ráð fyrir að Kepa Arrizabalaga verði áfram varamarkvörður á eftir David Raya.