ÍA hefur staðfest komu Guðmars Gauta Sævarssonar frá Fylki. Hann skrifar undir langtímasamning.
Guðmar er aðeins 18 ára gamall en hefur þó spilað 39 leiki fyrir meistaraflokks Fylkis. Þá vakti hann athygli með U-17 ára landsliði Íslands í fyrra.
ÍA er í 9. sæti Bestu deildarinnar en Fylkir spilar í Lengjudeildinni.
Tilkynning ÍA
Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við miðjumanninn efnilega Guðmar Gauta Sævarsson út keppnistímabilið 2029. ÍA og Fylkir hafa náð samkomulagi um félagaskipti Guðmars Gauta sem mun ganga í raðir ÍA þegar sumarfélagaskiptaglugginn á Íslandi opnar þann 16. júlí næstkomandi.
Guðmar Gauti, er fæddur árið 2008 og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 39 leiki fyrir meistaraflokk Fylkis og skorað í þeim fimm mörk. Hann á að baki 15 yngri landsleiki fyrir Ísland og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Þá var hann einn af lykilmönnum U17 ára landsliðs Íslands sem tryggði sér sæti og spilaði á lokamóti árið 2025, þar sem frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli erlendra félaga.
Það eru afar ánægjuleg tíðindi fyrir ÍA að Guðmar Gauti hafi valið Akranes sem næsta áfangastað á sínum ferli. Við hlökkum til að taka á móti Guðmari Gauta og styðja við áframhaldandi þróun hans á komandi árum.
Velkominn á Skagann, Guðmar Gauti!