433

Segir Víking vera að smella 20 milljónum á borðið fyrir Viktor

Mynd

Mikael Nikulásson, spekingur hlaðvarpsins Þungavigtarinnar, segir Víking vera að reyna að kaupa Viktor Jónsson frá ÍA.

Framherjinn Elías Már Ómarsson meiddist illa gegn Gyor í Meistaradeildinni og segir Mikael að Víkingur skoði að fylla hans skarð með hinum 32 ára gamla Viktori. 

Viktor hefur verið lykilmaður fyrir Skagamenn um árabil og Mikael segir að Íslandsmeistararnir séu til í að greiða 20 milljónir króna fyrir hann. 

„Þetta er ekki staðfest en ekki láta ykkur bregða ef þetta kemur á morgun eða hinn. Það eru einhverjar viðræður í gangi,“ segir Mikael. 

Viktor er uppalinn hjá Víkingi og skoraði 17 mörk í 82 leikjum fyrir meistaraflokk á sínum tíma. Þaðan fór hann í Þrótt og svo ÍA, þar sem hann hefur verið síðan 2019.