Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson sagði í nýjasta þætti Þungavigtarinnar að ósætti sé á milli knattspyrnu- og handknattleiksdeildar FH vegna framkvæmda á parketi í handboltahúsinu.
Kristján sagði að það ætti að taka upp parketið sem nú er og skipta því út. Hafnarfjarðarbær hafi gefið FH grænt ljós á að sjá um hluta verksins gegn greiðslu. Þó um heimavöll handboltaliðanna sé að ræða tók knattspyrnudeildin verkið að sér, að sögn Kristjáns.
„Hafnarfjarðarbær á mannvirkið og borgar fyrir þetta. FH-ingar eru klókir, þeir fá að taka að sér að taka upp gamla parketið og farga því. Maður hefði kannski haldið að handboltinn fengi að njóta ágóðans þar sem þetta er á þeirra heimavelli. Nei, knattspyrnudeildin fær að taka þetta að sér og þess vegna geta þeir keypt tvo leikmenn í glugganum,“ sagði Kristján og hélt því fram að fulltrúar handknattleiksdeildarinnar séu verulega ósáttir.
„Þetta eru ótrúleg vinnubrögð og það er allt tryllt. Menn eiga ekki orð. Þetta kostar fullt af peningum og það er vel gert að fá bæinn til að leyfa félaginu að njóta góðs af þessu.“