Fyrrverandi landsliðsmaður Rúmeníu, Gabriel Muresan, er látinn, 44 ára að aldri, eftir að hafa drukknað þegar hann var að synda í stöðuvatni.
Muresan átti farsælan feril með Cluj, þar sem hann vann átta titla, þar á meðal þrjá rúmenska meistaratitla. Hann lék einnig með liðinu í Meistaradeild Evrópu gegn Chelsea árið 2008 og Manchester United árið 2012.
Miðjumaðurinn lék níu A-landsleiki fyrir Rúmeníu og tók þátt í undankeppni HM og EM. Hann spilaði einnig með Tom Tomsk og ASA Targu Muree áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2017.
Frá árinu 2020 hafði Muresan gegnt embætti bæjarstjóra í bænum Apold í Transylvaníu og var endurkjörinn með miklum meirihluta fyrir tveimur árum.
Rúmenska knattspyrnusambandið vottaði fjölskyldu hans samúð sína í yfirlýsingu eftir andlátið.
Mureșan vakti mikla athygli árið 2014 þegar hann fékk 16 leikja bann fyrir að hafa kinnbeinsbrotið mótherja sinn, Raul Rusescu, með olnbogaskoti í leik.