433

Mikael teiknar upp svarta mynd af stöðunni - Telur að ótrúlegur atburður gæti raungerst hér á landi í haust

Mynd

Spennan í Bestu deild karla hefur sannarlega verið meiri en þetta tímabilið. Sparkspekingurinn Mikael Nikulásson óttast að spennan gæti orðið lítil sem engin þegar líða tekur á mótið.

Íslandsmeistarar Víkings eru einfaldlega langbesta lið landsins. Liðið er með 11 stiga forskot á toppi deildarinnar og stefna hraðbyri að því að vinna hana annað árið í röð, enda með ógnarsterkan leikmannahóp.

KR og Fram koma þar á eftir með nokkuð gott forskot á Breiðablik í fjórða sætinu. Það er því gott útlit fyrir þau með Evrópusætið en það er einmitt ekki ólíklegt að Blikar tryggi sér sæti þar í gegnum bikarinn. Liðið er komið í úrslitaleikinn þar og mætir Lengjudeildarliði, annað hvort Aftureldingu eða Fylki.

Þá væri hægt að horfa á Val í 5. sætinu upp á baráttu um Evrópusæti. Liðið er með 19 stig, 8 stigum á eftir Fram, sem einnig á leik til góða á Hlíðarendapilta.

„Þetta stefnir í versta tímabíl í helvíti mörg ár. Mögulega koma leikir í úrslitakeppninni þar sem verður enginn á vellinum,“ sagði Mikael í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni og á þar við leikina sem eru spilaðir eftir að deildinni er skipt upp eftir hefðbundið 22 leikja mót.

Það er von um spennandi fallbaráttu, þar sem Þór, FH og KA eru nú. 

„Hvar getur þetta orðið spennandi? Mögulega um það hvaða lið falla. Þetta lítur ekki vel út, það verður að segjast alveg eins og er,“ sagði Mikael.