Marokkó verður án lykilmannsins Ismael Saibari í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Frakklandi í kvöld.
Saibari fór meiddur af velli snemma í 3-0 sigri Marokkó á Kanada í 16-liða úrslitunum og hefur síðan gengist undir rannsóknir vegna meiðsla aftan í læri.
Þjálfarinn Mohamed Ouahbi staðfesti á blaðamannafundi að leikurinn kæmi of snemma fyrir sóknarmanninn.
„Allir eru klárir nema Saibari. Leikurinn kemur einfaldlega of snemma fyrir hann, en ég vona að hann nái næsta leik (ef Marokkó kemst áfram),“ sagði Ouahbi.
Saibari hefur verið einn besti leikmaður HM til þessa. Hann skoraði gegn Brasilíu, Skotlandi og Haítí í riðlakeppninni og skoraði einnig úr sigurspyrnu Marokkó í vítaspyrnukeppni gegn Hollandi í 32-liða úrslitum.
Líklegt er að Soufiane Rahimi taki sæti hans í byrjunarliðinu gegn Frökkum. Ouahbi sagðist þó hafa fulla trú á breidd hópsins og að varamennirnir gætu skipt sköpum þegar á hólminn væri komið.