Ingibjörg Sigurðardóttir, lykilmaður í íslenska landsliðinu, á von á barni. Hún greindi frá tíðindunum í dag.
Ingibjörg er 28 ára gömul og spilar fyrir þýska liðið Freiburg. Hún hefur einnig leikið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á atvinnumannaferlinum.
Miðvörðurinn er fastamaður í hjarta íslensku varnarinnar við hlið Glódísar Perlu Viggósdóttur.
„Og skyndilega fékk lífið nýja merkingu. Við erum svo spennt fyrir því að verða lítil fjölskylda í byrjun árs 2027.
Mér finnst ég svo heppinn að eiga svo margar ótrúlegar konur að sem hafa sýnt mér að mæðrahlutverkið og fótboltinn geta gengið saman. Get ekki beðið eftir að takast á við þessa áskorun,“ skrifar Ingibjörg á Instagram.