433

Ída Marín skoraði fimm mörk - Botnbaráttan galopin

Mynd
Getty Images

Ída Marín Hermannsdóttir átti hreint ótrúlegan leik og skoraði fimm mörk fyrir FH í 7-3 sigri gegn Þrótti í stórleik í Bestu deildinni í kvöld.

Alexia Marin Czerwien hafði komið Þrótti í 0-2 áður en Ída tók málin í sínar hendur.

Deja Jaylyn Sandoval og Berglind Freyja Hlynsdóttir skoruðu einnig fyrir FH en Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði þriðja mark Þróttar.

Botnlið Fram vann óvæntasta sigur sumarsins á Íslandsmeisturum Breiðabliks, 3-2. Taylor Marie Hamlett skoraði tvö mörk Fram og Harpa Helgadóttir settti sigurmarkið í lokin. Edith Kristín Kristjánsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel skoruðu fyrir Blika.

Þór/KA vann þá afar mikilvægan sigur á Grindavík/Njarðvík og galopnaði botnbaráttuna. Margrét Árnadóttir skoraði sigurmarkið. 

Fyrr í kvöld vann ÍBV 1-3 útisigur á Víkingi. Allison Grace Lowrey, Olga Sevcova og Allison Patricia Clark gerðu mörk Eyjakvenna en Arna Ísold Stefánsdóttir skoraði fyrir heimakonur.

Markaskorarar af Fótbolta.net