FIFA hefur svarað harðri gagnrýni í kjölfar 3-2 sigurs Argentínu á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM og hafnað öllum ásökunum um hlutdrægni dómara.
Eftir leikinn krafðist egypska knattspyrnusambandið rannsóknar á störfum dómarateymisins og vildi að því yrði vísað úr keppninni. Yfirmaður dómaramála FIFA, Pierluigi Collina, segir ásakanirnar ekki eiga rétt á sér.
„Uppbyggileg umræða um dómgæslu á alltaf rétt á sér, en tilhæfulausar ásakanir eiga ekki heima í knattspyrnu. Enginn getur dregið heilindi dómara HM í efa. Slíkt getur leitt til hótana í garð þeirra og fjölskyldna þeirra og það er óásættanlegt,“ sagði Collina.
Hann hafnaði jafnframt því að hægt sé að hafa áhrif á dómgæslu mótsins.
„Enginn getur haldið því fram að dómgæslan sé undir áhrifum frá nokkrum aðila, ekki einu sinni forseta FIFA. Dómarar taka heiðarlegar ákvarðanir og reyna ávallt að gera sitt besta.“