Stjarnan kom til baka og vann Víking Götu í fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Aron Benjaminsen kom Víkingi yfir en Emil Atlason jafnaði fyrir Stjörnumenn af vítapunktinum fyrir hlé.
Emil var aftur á ferðinni með mark um miðbik seinni hálfleiks og hann innsiglaði svo 3-1 sigur heimamanna og þrennu sína þegar hann skoraði úr annarri vítaspyrnu á 78. mínútu.
Liðin mætast í Færeyjum eftir viku og Stjörnumenn fara með gott veganesti í seinni leikinn.