Barcelona hefur lagt fram tilboð í kantmanninn Karim Adeyemi hjá Borussia Dortmund.
Samkvæmt helstu miðlum vill Adeyemi yfirgefa Dortmund eftir að viðræður um nýjan samning runnu út í sandinn. Sá sem nú er í gildi rennur út eftir ár.
Hann á að hafa þegar komist að munnlegu samkomulagi við Barcelona um langtímasamning og bíður nú eftir að félögin semji um kaupverðið.
Dortmund metur þennan 24 ára gamla Þjóðverja á um 40 milljónir evra. Stjóri Börsunga, Hansi Flick er sagður hafa þrýst á að kaupin gangi í gegn, en hann telur hraða hans og fjölhæfni henta leikstíl Barcelona vel.
Adeyemi hefur verið hjá Dortmund í fjögur ár. Hann hefur á þeim tíma skorað 36 mörk og lagt upp 25 í 146 leikjum.