Ákall um rannsókn á aðkomu Gianni Infantino að umdeildri ákvörðun um að leyfa Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum HM hefur fengið byr undir báða vængi.
Balogun fékk rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu og átti sjálfkrafa að taka út eins leiks bann. FIFA frestaði hins vegar banninu um eitt ár skömmu fyrir leik Bandaríkjanna gegn Belgíu, þar sem framherjinn var því gjaldgengur. Bandaríkin töpuðu leiknum 4-1.
Samkvæmt The Athletic hafa 72 þingmenn Evrópuþingsins sent bréf til knattspyrnusambanda innan Evrópusambandsins þar sem þeir fara fram á rannsókn á ákvörðunarferlinu.
Í bréfinu segir að reglur FIFA kveði skýrt á um pólitískt hlutleysi og að sambandið verði að skýra hvernig ákvörðunin var tekin.
Málið hefur vakið mikla athygli vegna náinna tengsla Infantino við Donald Trump, sem sagðist sjálfur hafa farið fram á endurskoðun bannsins.
Þrátt fyrir að FIFA hafi sagt ákvörðunina tekna af sjálfstæðri nefnd hefur gagnrýni á sambandið farið vaxandi og margir telja að trúverðugleiki mótsins hafi beðið hnekki.