433

Vondar fréttir fyrir Víking - Þjálfarinn baunar á Reykjavíkurborg

Mynd

Elías Már Ómarsson, einn besti leikmaður Víkings á leiktíðinni, meiddist illa gegn Gyor í Meistaradeildinni í gær.

Víkingur vann fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppninnar í Víkinni í gær, en Elías fór meiddur af velli er hann festist í gervigrasinu.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistaranna, sagði við Fótbolta.net eftir leik að meiðslin litu ekki vel út og skaut hann hressilega á Reykjavíkurborg.

„Ég hef ekki fengið neinar fréttir aðrar en þær að þetta lítur ekki vel út, þetta er einhver snúningur á hnéið. Það er ekki boðlegt að það sé boðið upp á þetta gras þar sem við erum búnir að vera flaggberar Íslands á erlendri grundu og erum fulltrúi íslenskrar knattspyrnu og það sé ekki búið að koma með betra gras hingað.

Við sáum það í kvenna knattspyrnunni líka. Það var krossbandaslit hjá okkur í kvennaboltanum og núna vonandi ekki það alvarleg meiðsli. En menn eru að festast í grasinu og mér finnst að Reykjavíkurborg þurfi aðeins að fara rífa sig upp og hjálpa félögum og gera betur í þessum málum," sagði Sölvi um málið við Fótbolta.net. 

Elías kom til Víkings í vetur og hefur verið frábær á tímabilinu. Hann er kominn með 12 mörk og 2 stoðsendingar í 14 leikjum í Bestu deildinni.