433

Vilja að dómararnir verði sendir heim eftir frammistöðu sína í gær

Mynd
Getty Images

Egypska knattspyrnusambandið hefur lagt fram formlega kvörtun til FIFA vegna dómgæslunnar í 3-2 tapi gegn Argentínu í 16-liða úrslitum HM.

Sambandið krefst rannsóknar á störfum dómarateymisins, undir stjórn Francois Letexier, og vill að bæði aðaldómari og VAR-teymið verði reknir af mótinu. 

Egyptar voru sérstaklega ósáttir við að mark Mostafa Ziko hafi verið dæmt af eftir VAR-skoðun vegna brots fyrr í sókninni. Þá töldu þeir einnig að dæma hefði átt vítaspyrnu þegar brotið var á Mohamed Salah skömmu áður en Argentína skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Landsliðsþjálfarinn Hossam Hassan sagði eftir leik að Egyptar hefðu verið beittir óréttlæti og gaf í skyn afhenda ætti Argentínumönnum titilinn á silfurfati.