Veikindi hafa sett strik í reikninginn hjá norska landsliðinu fyrir leikinn við England í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á laugardag.
Markvörðurinn Orjan Nyland staðfesti að veikindi hafi herjað norska hópinn síðustu daga.
„Við höfum lent í smá vandamálum og liðslæknirinn hefur haft nóg að gera. Vonandi verða allir klárir fyrir leikinn á laugardag,“ sagði Nyland.
Nokkrir leikmenn hafa þegar veikst á mótinu. Marcus Holmgren Pedersen missti af sigrinum gegn Brasilíu vegna veikinda og Jorgen Strand Larsen missti af fyrsta leik mótsins af sömu ástæðu.
Samkvæmt norska miðlinum Dagbladet er talið að mikil ferðalög liðsins á milli leikstaða hafi meðal annars spilað inn í.
Norska þjóðin liggur á bæn um að lykilpóstar í norska liðinu verði allavega klárir gegn Englendingum á laugardagskvöld.