Manchester United hefur náð samkomulagi við Chelsea um kaup á brasilíska miðjumanninum Andrey Santos.
United greiðir 50 milljónir punda. Chelsea tryggði sér jafnframt 10 prósenta endursöluklásúlu.
Santos hefur fengið leyfi til að gangast undir læknisskoðun og er væntanlegur til Manchester á næstu dögum. Hann verður annar miðjumaðurinn sem United fær í sumar, en félagið er einnig við það að klára kaup á Ederson frá Atalanta.
United lagði áherslu á að styrkja miðjuna eftir brottför Casemiro og alvarleg hnémeiðsli Manuel Ugarte.
Chelsea keypti Santos frá CR Vasco da Gama árið 2023 fyrir um 16 milljónir punda og hagnast því verulega á sölunni. Brasilíumaðurinn vildi sjálfur færa sig um set til að fá að spila meira.