433

United heldur enn í vonina

Mynd
Alex Scott Getty Images

Manchester United heldur áfram í vonina um að fá miðjumanninn Alex Scott frá Bournemouth.

Samkvæmt The Sun er Scott enn á óskalista United, þrátt fyrir að Bournemouth meti þennan 22 ára gamla leikmann á um 80 milljónir punda. 

Líklegt er að United fái allavega tvo nýja leikmenn inn á miðjuna í sumar. Ederson kemur að öllum líkindum frá Atalanta og Scott, sem er eftirsóttur eftir gott tímabil, er einnig á blaði.

Þá hafa menn eins og Aurelien Tchouameni, Andrey Santos og Carlos Baleba einnig verið orðaðir við félagið.