433

Svona er mataræði Haaland - Ótrúlegur kaloríufjöldi og þetta er svindlmáltíðin

Mynd

Erling Braut Haaland þarf að innbyrða um 6 þúsund hitaeiningar á dag til að viðhalda líkamsburðum sínum. Norski framherjinn er ein af stjörnum heimsmeistaramótsins vestan hafs.

Haaland hefur verið sjóðheitur fyrir Noreg, sem er óvænt kominn í 8-liða úrslit á HM vestanhafs. Kappinn er kominn með sjö mörk í fjórum leikjum. Skoraði hann tvö þegar Norðmenn slógu Brasilíu úr leik í 16-liða úrslitunum.

Mynd

Haaland, sem er 195 sentímetrar á hæð og naut að burðum, borðar sex máltíðir á dag. Daglegt mataræði hans samanstendur að mestu af kjúklingi, pasta, fiski og fersku grænmeti, en hann drekkur nær eingöngu vatn og forðast sykraðan mat.

Þrátt fyrir það á hann sínar uppáhalds svindlmáltíðir. Þegar hann er í heimabæ sínum í Noregi, Bryne, fær hann sér gjarnan kebab-pítsu eða kínverskan mat.

„Ég elska kebab. Ég borða það þó aðeins nokkrum sinnum á ári þegar ég er heima í Bryne,“ sagði Haaland árið 2022.

Faðir hans, Alf-Inge Haaland, sem einnig var norskur landsliðsmaður, hefur áður greint frá því að sonurinn hafi tekið mataræði Cristiano Ronaldo sér til fyrirmyndar eftir að hafa heyrt sögu frá Patrice Evra, fyrrum liðsfélaga Portúgalans, um hversu agaður Portúgalinn væri þegar kemur að mataræði.

Haaland og norska landsliðið mæta Englendingum í 8-liða úrslitum á laugardag.