433

Stjarnfræðilega hár verðmiði á skotmarki United

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur áhuga á miðjumanninum Felix Nmecha hjá Borussia Dortmund, en hann verður allt annað en ódýr.

Samkvæmt The Athletic metur Dortmund þennan 25 ára gamla Þjóðverja á rúmlega 100 milljóna punda. Félagið er ekki undir neinni pressu að selja enda framlengdi Nmecha samning sinn til ársins 2030 fyrr á árinu.

United er á höttunum eftir miðjumanni í sumar og hefur skoðað nokkra kosti. Nmecha er sagður vera einn þeirra, en ólíklegt þykir að enska félagið sé tilbúið að greiða þá upphæð sem Dortmund fer fram á.

Nmecha hefur fest sig í sessi sem lykilmaður hjá Dortmund og því virðist þýska félagið ekki hafa áhuga á að selja nema himinhátt tilboð berist.