433

Sagður hafa samið við Englandsmeistarana

Mynd
Getty Images

Arsenal gæti fest kaup á Manu Kone hjá Roma í sumar samkvæmt ítölskum miðlum.

Kone er 25 ára gamall miðjumaður sem hefur spilað þrjá leiki franska landsliðsins á HM sem nú stendur yfir vestanhafs.

Sagt er að hann hafi sjálfur gefið Englandsmeisturunum grænt ljós en félögin eiga eftir að semja.

Roma ku vilja um 43 milljónir punda, eigi félagið að sleppa Kone í sumar. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum og staða ítalska félagsins í viðræðunum því sterk.

Ólíklegt er þó að nokkuð gerist í þessum málum fyrr en eftir heimsmeistaramótið.

Kone hefur verið hjá Roma í tvö ár og er lykilmaður í liðinu.