433

Rasísk stjórnmálakona veður áfram í Mbappe - Gefur í skyn að hún gæti látið fangelsa hann

Mynd
Getty Images

Paragvæska stjórnmálakonan Celeste Amarilla hefur krafist afsökunarbeiðni frá Kylian Mbappe eftir orðaskipti þeirra í kjölfar leiks Frakklands og Paragvæ í 16-liða úrslitum HM á dögunum.

Amarilla vakti mikla reiði eftir að hafa birt rasísk ummæli um Mbappe á samfélagsmiðlum eftir 1-0 tap Paragvæ. Mbappe svaraði fullum hálsi og sagði hana „fyrirlitlega konu“ sem væri ekki verðug embættis síns. Þá hefur franska knattspyrnusambandið boðað kæru vegna ummælanna.

Nú hefur Amarilla birt opið bréf þar sem hún segist sjá eftir færslunum, sem hún skrifaði að sögn í hita augnabliksins, en krefst þess jafnframt að Mbappe dragi orð sín til baka.

„Ég áttaði mig á því að ég var farin að haga mér eins og það fólk sem ég fyrirlít. Nú býst ég við því að þú gerir slíkt hið sama og biðjir mig afsökunar. Annars gæti ég höfðað mál á grundvelli kynbundins og pólitísks ofbeldis,“ skrifaði Amarilla.

Í viðtali við paragvæska fjölmiðla gekk hún enn lengra og sagði Mbappe ekki eiga að vanmeta Paragvæ.

„Ronaldinho var fangelsaður hér og Mbappe ætti að fara varlega. Ég get stefnt honum fyrir kynbundið og pólitískt ofbeldi,“ sagði Amarilla.

Hvorki Mbappe né franska knattspyrnusambandið hafa brugðist við nýjustu ummælum hennar.