FIFA hefur hafið rannsókn á meintu kynþáttaníði í garð samfélagsmiðlastjörnunnar IShowSpeed á leik Argentínu og Grænhöfðaeyja á HM á dögunum.
Atvikið átti sér stað á áhorfendapöllunum á Hard Rock Stadium þar sem IShowSpeed, sem var klæddur í treyju Grænhöfðaeyja, lenti í orðaskiptum við argentínskan stuðningsmann. Myndband af atvikinu birtist í beinni útsendingu á YouTube-rás hans.
Í yfirlýsingu frá FIFA segir að sambandinu hafi strax verið gert viðvart um málið og rannsókn sé hafin.
„Heimsmeistaramótið er hátíð sem byggir á fjölbreytileika og virðingu. Þeir sem grafa undan þeim gildum eiga ekki heima í knattspyrnunni,“ segir í yfirlýsingunni.