Ofurtölvan spáir því að enska landsliðið komist í undanúrslit HM en detti þar úr leik gegn Argentínu.
Samkvæmt spánni sigrar England Erling Braut Haaland og félaga í norska landsliðinu, 1-0, í 8-liða úrslitum áður en Argentína hefur betur gegn enska liðinu með sama mun í undanúrslitum.
Ofurtölvan spáir því að Frakkland og Argentína leiki til úrslita, líkt og á HM 2022, og að Argentínumenn hafi aftur betur, 2-1.
Ofurtölvan spáir því loks að Spánn vinni England í leiknum um bronsið.