Leeds er sagt skoða þann möguleika að fá norska markvörðinn Orjan Nyland á frjálsri sölu í sumar.
Nyland er samningslaus eftir að samningur hans við spænska félagið Sevilla rann út. Hann myndi því koma frítt.
Þá hefur hann vakið athygli með frammistöðu sinni fyrir Noreg á HM, en liðið er komið í 8-liða úrslit, þar sem það mætir Englandi á laugardagskvöldið.
Leeds er á höttunum eftir nýjum markverði eftir að Illan Meslier yfirgaf félagið í sumar. Allar líkur eru á að hann sé á leið til Arsenal.