433

Íslenskir dómarar að störfum í Evrópu

Mynd

Íslenskir dómarar eru um þessar mundir við störf erlendis í Evrópukeppnum.

Í Meistaradeild Evrópu á leik Kauno Zalgiris gegn Drita í gær var Ívar Orri Kristjánsson dómari. Aðstoðardómarar voru þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson. Helgi Mikael Jónasson var fjórði dómari.

Mynd

Í Sambandsdeild Evrópu í kvöld í leik Connah's Quay gegn Ballkani verður Jóhann Ingi Jónsson dómari og þeir Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs verða honum til aðstoðar. Fjórði dómari verður Þórður Þorsteinsson Þórðarson.

Á morgun verður Gunnar Jarl Jónsson eftirlitsmaður í leik NSÍ Runavík og Hamrun Spartans í Sambandsdeild Evrópu.