433

Hlynur Freyr kynntur til leiks hjá Blikum

Mynd
Mynd: Breiðablik

Hlynur Freyr Karlsson er kominn til Breiðabliks á láni frá sænska félaginu Brommapojkarna.

Félagið staðfesti þetta fyrir skömmu. Lánssamningurinn er út tímabilið en samningur hans í Svíþjóð rennur einmitt út í lok árs.

Tilkynning Breiðabliks
Breiðablik og IF Brommapojkarna hafa komist að samkomulagi um að Hlynur Freyr Karlsson muni leika með Breiðabliki, það sem eftir lifir keppnistímabilsins á Íslandi. Hlynur Freyr er uppalinn hjá Breiðabliki og lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins árið 2020, þá aðeins 16 ára gamall. Í kjölfar þess hélt Hlynur til Ítalíu, þar sem hann var á mála hjá úrvalsdeildarfélaginu Bologna um nokkurra ára skeið.

Undanfarin tvö ár hefur Hlynur leikið fyrir sænska úrvalsdeildarfélagið IF Brommapojkarna, en þar á undan lék Hlynur um stutt skeið með Haugesund í norsku úrvalsdeildinni. Hlynur á einn A-landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann hefur leikið 39 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Velkominn heim, Hlynur Freyr