433

Hættur eftir níu farsæl ár

Mynd

Zlatko Dalic hefur sagt af sér sem landsliðsþjálfari Króatíu eftir níu ár í starfi.

Dalic tók við liðinu árið 2017 og stýrði Króatíu til silfurverðlauna á HM 2018 og bronsverðlauna fjórum árum síðar. Hann stígur til hliðar í kjölfar þess að Króatar féllu úr leik gegn Portúgal í 32-liða úrslitum HM.

Króatíska knattspyrnusambandið þakkar Dalic fyrir störf hans í yfirlýsingu.

„Takk fyrir sigrana, árangurinn, sæti á stórmótum, verðlaunin og óbilandi baráttu fyrir Króatíu innan vallar sem utan,“ segir þar meðal annars.