433

Greenwood að færa sig um set

Mynd
Getty Images

Það er líklegt að Mason Greenwood endi hjá Fenerbahce í sumar.

Fenerbahce hefur lagt fram 40 milljóna evra tilboð í enska sóknarmanninn. Talið er að félag hans, Marseille, vilji fá um 50 milljónir en félögin virðast nálgast samkomulag.

Greenwood sjálfur er opinn fyrir því að fara til Tyrklands, en Fenerbahce er til í að greiða honum ansi há laun. 

Greenwood hefur verið hjá Marseille í tvö ár og leikið fantavel. Hann hefur skorað 48 mörk og lagt upp 17 í 81 leik.

Hann hefur einnig leikið með Getafe og auðvitað Manchester United á ferlinum.