433

Garnacho gæti sameinast gömlum liðsfélögum frá Manchester United

Mynd
Getty Images

Chelsea er sagt tilbúið að hlusta á tilboð í kantmanninn Alejandro Garnacho aðeins ári eftir komu hans frá Manchester United.

Samkvæmt miðlinum Teamtalk fylgjast nokkur félög með stöðu Garnacho, þar á meðal Napoli. Þá er einnig sagt að leikmaðurinn sé opinn fyrir því að flytja til Sádi-Arabíu ef rétt tilboð berst.

Hjá Napoli myndi hann hitta fyrir menn eins og Rasmus Hojlund og Scott McTominay, sem hann spilaði með hjá United.

Chelsea gerði miklar væntingar til Argentínumannsins, en hann stóð engan veginn undir þeim á sínu fyrsta tímabili á Stamford Bridge.