London City Lionesses hefur staðfest komu Alexia Putellas frá Barcelona. Eru þetta ein stærstu skipti í sögu kvennaknattspyrnunnar.
Spænski miðjumaðurinn skrifar undir þriggja ára samning eftir að hafa yfirgefið Barcelona, þar sem hún lék í 14 ár, í vor.
Putellas, sem hefur tvívegis unnið Ballon d'Or, vann alls 38 titla með Barcelona, þar á meðal tíu deildarmeistaratitla og fjóra Meistaradeildartitla. Hún skoraði 232 mörk í 507 leikjum og er markahæst í sögunni.
„Ég er spennt fyrir þessum nýja kafla. Metnaður félagsins og framtíðarsýn þess höfðu mikil áhrif á ákvörðun mína. Ég hlakka til að berjast um titla og leggja mitt af mörkum bæði innan vallar og utan,“ sagði Putellas eftir undirskrift.
London City endaði í sjötta sæti efstu deildar Englands á síðustu leiktíð en liðið er á mikilli uppleið. Talið er að Putellas muni þéna vel í ensku höfuðborginni.