Newcastle hefur mikinn áhuga á svissneska miðjumanninum Johan Manzambi hjá Freiburg.
Samkvæmt blaðamanninum Florian Plettenberg hefur Newcastle þegar kynnt sér fjárhagslegar forsendur mögulegra félagaskipta, en viðræður félaganna eru ekki hafnar.
Freiburg er sagt vilja allt að 60 milljónir evra fyrir hinn tvítuga Manzambi, sem hefur vakið mikla athygli með Sviss á HM og skorað þrjú mörk.
Hann er samningsbundinn þýska félaginu til ársins 2030 og samningsstaða þess því sterk.
Newcastle vill styrkja miðju sína eftir brottför Sandro Tonali til Tottenham og þar sem framtíð Bruno Guimaraes hjá félaginu er óljós.