433

Áður óséð myndband af því sem gekk á í gær - Var hársbreidd frá því að vaða í Messi

Mynd

Nýtt myndband varpar frekara ljósi á það sem gekk á undir lok leiks Argentínu og Egyptalands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær. 

Egyptar leiddu 0-2 þegar innan við korter var eftir en Argentínumenn sneru dæminu við og unnu magnaðan 3-2 sigur í venjulegum leiktíma. 

Egyptar voru afar ósáttir með dómgæsluna í leiknum og voru gjörsamlega trylltir í restina. Myndskeið sem hefur birst á samfélagsmiðlum virðist sýna markmannsþjálfara Egypta, Saafan El-Sagheer, gera tilraun til að veitast að Lionel Messi. 

Samstarfsmenn hans og aðrir á bekknum náðu þó að stöðva hann áður en til frekari átaka kom. Messi var á sama tíma leiddur í burtu af liðsfélögum sínum, Lisandro Martinez og Leandro Paredes. 

Dómarinn Francois Letexier rak El-Sagheer af velli með rautt spjald. Þá fékk landsliðsþjálfarinn Hossam Hassan einnig gult spjald eftir að hafa mótmælt harðlega. 

Eftir leik létu þjálfari og leikmenn Egypta hressilega í sér heyra og sökuðu dómara og FIFA meðal annars um að ætla að afhenda Argentínu heimsmeistaratitilinn.

One of the Egyptian coaches tries to fight Lionel Messi and gets a red card
by u/TomlinSteelers in sports