433

Túfa látinn fara

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Srdjan Tufegdzic, Túfa, hefur verið látinn fara frá sænska félaginu Varnamo.

Túfa, sem hefur þjálfað víða hér á landi og var með Val síðasta sumar, tók við Varnamö, sem er í sænsku B-deildinni eftir að hafa fallið úr efstu deild í fyrra, fyrir tímabil.

Gengið hefur hins vegar verið undir væntingum og liðið er í botnbaráttu sem stendur. Því hefur verið ákveðið að ráðast í breytingar í þjálfarastólnum.

Þess má geta að Logi Hrafn Róbertsson er á mála hjá Varnamo.