433

Sviss sló Kólumbíu út í vítaspyrnukeppni - Svona verða 8-liða úrslitin

Mynd
Getty Images

Sviss er komið í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir sigur á Kólumbíu í vítaspyrnukeppni í kvöld. 

Það var búist við fremur lokuðum leik og niðurstaðan varð markalaust jafntefli eftir venjulegan leiktíma og framlengingu.

Því var farið í vítaspyrnukeppni, þar sem Svisslendingar skoruðu úr fjórum vítum en Kólumbía þremur. 

Þetta er besti árangur Sviss síðan á HM 1954. Liðið mætir heimsmeisturum Argentínu í 8-liða úrslitum.

Þetta var jafnframt síðasti leikur 16-liða úrslitanna. 8-liða úrslitin líta svona út:

Frakkland - Marokkó

Spánn - Belgía

Noregur - England

Argentína Sviss