433

Rosenior kominn með nýtt starf

Mynd
Getty Images

Liam Rosenior hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Paris FC.

Rosenior var rekinn frá Chelsea fyrir þremur mánuðum eftir dapurt gengi en tekur nú við franska úrvalsdeildarliðinu.

Paris FC endaði í 11. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa tryggt sér sæti í deildinni árið áður. 

Félagið rak Stephane Gilli í febrúar og Antoine Kombouare stýrði liðinu út tímabilið, áður en hann lét af störfum í sumar.

Rosenior þekkir vel til í Frakklandi en hann stýrði áður Strasbourg og kom liðinu til að mynda í Sambandsdeildina, áður en hann tók við Chelsea.