433

Myndband: Rauk pirraður úr viðtölum eftir tap í gær - Hafði rifist við fyrrum landsliðsmann í beinni

Mynd

Ruben Dias gekk út af viðtalssvæðinu (e. mix zone) eftir að portúgalska landsliðið féll úr leik í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 1-0 tapi gegn Spánverjum. 

Dias mætti til að svara fréttamönnum eftir leik. Hann yfirgaf hins vegar svæðið pirraður án þess að svara nokkurri spurningu þar sem Mikel Merino, sem skoraði sigurmark Spánar í leiknum, var að sinna fjölmiðlaskyldum sínum á sama tíma einnig og heyrðist í honum. 

Nokkuð fjaðrafok hafði verið á viðtalssvæðinu á undan. Fjölmiðlafulltrúi Portúgala virtist eiga í vandræðum með að finna portúgalskan blaðamann til að spyrja Dias og virtist nokkuð pirraður á stöðunni. 

Þetta má sjá hér neðar. 

Dias átti þá í orðaskiptum við Ricardo Quaresma, fyrrum landsliðsmann Portúgals eftir leik. Sá gagnrýndi frammistöðu portúgalska liðsins harðlega og sagði liðið hafa valdið vonbrigði á HM. 

Dias varði hins vegar leikskipulagið og sagði Portúgal hafa átt sinn besta leik gegn Spáni frá því hann kom í landsliðið. Quaresma var ósammála og sagði Spánverja hafa stjórnað leiknum frá upphafi til enda.